Um BOOM
BOOM er stafræn auglýsingastofa sem sérhæfir sig í umsjón með samfélagsmiðlum, efnissköpun, ljósmyndun, myndbandagerð og öðrum stafrænum lausnum. Markmið BOOM er að hjálpa þínu fyrirtæki að ná skjótum árangri í markaðsmálum með notkun stafrænna miðla. Við bjóðum upp á ókeypis þarfagreiningu þar sem við finnum út hvað hentar þínu fyrirtæki. Viðskiptavinir BOOM eru af öllum stærðargráðum og markaðsáætlanir okkar miðast við þínar þarfir.
OKKAR MARKMIÐ ER AÐ NÝTA GÓÐAR HUGMYNDIR TIL AÐ FINNA LAUSNIR FYRIR ÞITT FYRIRTÆKI

Hugmyndasmiður og eigandi BOOM er Helgi Jean Claessen sem hefur starfað við markaðsmál frá árinu 2004. Helgi er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í markaðsmálum og stefnumótun. Hann hefur starfað fyrir um 50 fyrirtæki á síðastliðnum árum.
Nokkrir af viðskiptavinum BOOM

Við þrífumst á verkefnum sem skila framúrskarandi árangri!
Ný tækni. Rétta lausnin.
Þróun tækninnar verður hraðari með hverju árinu sem er að líða. Við fylgjumst vel með fyrir þína hönd og byggjum okkar hugmyndir upp á nýjustu tækni.

4K myndbönd og hágæða ljósmyndir
Við notum aðeins nýjustu græjur til að framleiða efni fyrir okkar viðskiptavini.Gæðin skipta máli
Myndböndin okkar eru oftast tekin upp í 4K en svo þjöppum við þeim saman í þá stærð sem hentar hverjum og einum miðli.

Endalausir möguleikar
Við bjóðum upp á fjölda möguleika svo engin markaðsherferð verður eins.Veljum saman það sem hentar þínu fyrirtæki
Valmöguleikarnir eru óteljandi en við aðstoðum þig við að velja það sem hentar þér og þínu fyrirtæki.

Góðar hugmyndir
Markaðsmál byggja á góðum hugmyndum og við eigum nóg af þeim.Hugmyndir eru eldsneytið
Fyrir hverja markaðsherferð þarf nýjar og frumlegar hugmyndir. Starfsmenn BOOM eru með hugmyndabanka með óteljandi hugmyndum sem gætu nýst þínu fyrirtæki.
Spjallaðu við okkur um þínar hugmyndir.
Ertu utan af landi? Taktu netspjall við okkur.
Móttóin okkar eru sköpunargáfa, innsæi & áræðni.
BOOM notar verk- og gæðastjórnunarkerfi sem tryggir að allar hugmyndir komast til skila.
Við erum hugmyndarík
Markaðssetning byggir á frumlegum hugmyndum og við erum óhrædd við að segja að við erum hugmyndarík.
Við höfum innsæi
Þegar við eigum fundi með viðskiptavinum þá er mikilvægt að skilaboðin komist til skila. Við notum reynslu og innsæi til að tryggja að allt fari samkvæmt áætlun.
Við erum áræðin
Við framkvæmum hugmyndirnar og tryggjum gæðastjórnun. Hugmyndastjórinn tryggir að allt ferlið frá hugmynd að framkvæmd sé að skila árangri.

Við erum hér til að koma þínu fyrirtæki á næsta stig!
Við þróum góðar hugmyndir, nýtum tæknina & framkvæmum allt samkvæmt áætlun.